Færðu endurhæfingu glæsilegt hlaupabretti

Hluti af fastagestum endurhæfingarinnar, reyndar óvenju fáir þennan morgun því oftast er sundlaugin smekkfull. Á bakkanum eru Sigrún Aadnegard og Fanney Ísfold Karlsdóttir sjúkraþjálfari. Myns: KSE
Hluti af fastagestum endurhæfingarinnar, reyndar óvenju fáir þennan morgun því oftast er sundlaugin smekkfull. Á bakkanum eru Sigrún Aadnegard og Fanney Ísfold Karlsdóttir sjúkraþjálfari. Myns: KSE

Nýlega barst endurhæfingu Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki vegleg gjöf frá velunnurum. Söfnuðu þeir fyrir nýju hlaupabretti sem nú hefur verið komið fyrir í tækjasal, meðal annars með basar og öðrum fjáröflunum.

Hópurinn samanstendur af fólki sem reglulega nýtir sér aðstöðuna í endurhæfingunni, en þar er vel útbúin innisundlaug, heitur pottur og lítill æfingasalur, með ýmsum tækjum til líkamsræktar. Notendur sem blaðamaður hitti að máli voru almennt sammála um að aðstaðan skipti sköpum fyrir þá. „Þetta heldur manni gangandi,“ eins og einn þeirra komst að orði.

Fanney Ísfold Karlsdóttir, sjúkraþjálfari við Heilbrigðisstofnunina, sagði að starfsmenn þar væru óendanlega þakklátir fyrir gjafmildi velunnaranna, sem hefðu safnað fyrir þessu glæsilega hlaupabretti. 

Fleiri fréttir