Fannst heill á húfi eftir að hafa velt sleða ofan í læk
Í gær voru allar björgunarsveitir á Norðurlandi vestra kallaðar út vegna leitar að manni sem saknað var á í Vesturárdal í Miðfirði. Sá sem leitað var af er bóndi á svæðinu en hann hafði farið frá heimili sínu á vélsleða eftir hádegi í gær. Frá þessu var m.a. greint á vefnum mbl.is.
Lét hann síðan vita af sér í síma um klukkan 16:30 en það símtal rofnaði og eftir það náðist ekki samband við hann. Um kvöldmatarleytið voru björgunarsveitir kallaðar út og leituðu þær mannsins um kvöldið.
Það var svo bóndi sem var á ferð á traktor sem fann hinn týnda. Hafði maðurinn velt sleða sínum ofan í læk og ekki náð að koma honum upp úr. Hann var heill á húfi en orðinn nokkuð kaldur.