Fannst meðvitundarlaus á Sauðárkróki
Eldri maður fannst meðvitundarlaus í útbæ Sauðárkróks rétt fyrir hádegi í dag. Þegar að var komið var hann orðinn mjög kaldur og rænulaus.
Strax var hafist handa við að koma manninum til meðvitundar og var hann fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Ekki er vitað um líðan mannsins að svo stöddu.