Farskólinn útskrifar úr Skrifstofuskólanum
Þriðjudaginn 29. mars var Skrifstofuskólanum á Sauðárkróki slitið. Námsmenn voru 13 að tölu. Námskeiðið var haldið að frumkvæði Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra og í samvinnu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Aðalheiður Reynisdóttir og Sigríður Svavarsdóttir, kennarar við Fjölbrautaskólann, héldu utan um verkefnið en kennarar á námskeiðinu starfa hjá Fjölbrautaskólanum. Auk þeirra Aðalheiðar og Sigríðar kenndi Þorkell Þorsteinsson ensku á námskeiðinu.
Skrifstofuskólinn er 240 kennslustunda námskeið. Markmið Skrifstofuskólans er meðal annars að undirbúa fólk undir það að vinna á nútíma skrifstofu. Það er Fræðslumiðstöð atvinnulífsins sem gefur námskrá Skrifstofuskólans út og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur vottað að meta megi námið til allt að 18 framhaldsskólaeininga.
Skrifstofuskólinn er einnig haldinn á Blönduósi og lýkur honum í maí.