Fatlaðir í vanda við Glaumbæ
Feyki barst ábending frá Friðriki Brekkan, leiðsögumanni um slæmt aðgengi fyrir fatlaða að Glaumbæjarsafni en þangað fór hann með hóp fyrr í haust. Hann segir að einn af hápunktum ferðarinnar hafi átt að vera ferð til að skoða þjóðlega hluti m.a. í Glaumbæ í Skagafirði.
Friðrik segir að allir hafi þurft frá að hverfa vegna hugsunarleysis í garð fatlaðra en salernið við bílastæðið sé í góðu lagi. Þá sé það upp talið sem gert hefur verið fyrr fatlað fólk við Glaumbæinn. „Kom síðast fyrir 6 árum að Glaumbæ með sams konar hóp og ekkert hefur verið gert nema hugsanlega þetta eina WC,“ segir Friðrik sem hvetur sveitarfélagið til að bæta um.
Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri hjá Byggðasafni Skagfirðinga segir að upp að gamla bænum í Glaumbæ hafi verið lagður hellustígur í fyrra til að auðvelda aðkomu fólks og til að verja grasfleti. Við hlið hans upp á bæjarhlað er malarstígur með mjög fínni möl. Þessir stígar eru nokkuð brattir á parti en langflestir komast þá. Hún telur að hjólastólar af þeirri gerð sem komu í fyrrgreinda heimsókn komist sennilega ekki um nema um malbikaða stíga.
„Við höfum ekki planað lagningu malbikaðra stíga að bænum í náinni framtíð en hver veit hvað bíður þar. Gamli bærinn er alfriðaður og honum verður ekki breytt, hvorki með reglugerðum nútímans né þekktum framtíðarplönum, nema varðveislumálum verði kúvent,“ segir Sigríður og bætir við að auðvitað sé það leiðinlegt að það komist ekki allir alveg að bænum og eða inn í hann. Það sé hinsvegar staðreynd.
„Við verðum að treysta dómgreind þeirra sem skipuleggja ferðir fólks. Langflestir hafa samband fyrirfram þegar skipulagðar eru ferðir inn á svæði eins og gamla bæjarhóla og ójafna jörð, með fólk í hjólastólum. Það á ekki að þurfa að hrella fólk með heimsókn á staði sem eru ómögulegir yfirferðar.“
Áður birst í Feyki 35. tbl.