Fékk að gefa stjörnunum háa fimmu

Steinar Óli Sigfússon upplifði draum allra ungra knattspyrnuáhugamanna á dögunum er hann var valinn úr hópi íslenskra barna til að fara á úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu milli Manchester United og Barcelona og leiða einn leikmannanna inn á völlinn. Steinar Óli naut aðstoðar föður síns Sigfúsar Inga Sigfússonar í ferðalaginu og rituðu þeir feðgar ferðasöguna sem birt er í Feyki sem kemur út í dag.

„Æfintýrið hófst sunnudagsmorguninn 15.maí s.l. þegar Hildur Hilmarsdóttir hjá MasterCard á Íslandi hringdi í pabba og sagði honum að ég hefði verið einn af 5 krökkum sem hefðu verið dregnir út í leiknum ´Litlir fótboltasnillingar“, segir Steinar en í því fólst að einn úr hópnum yrði valinn til að fara á Wembley-leikvanginn í Lundúnum og leiða einn leikmann inn á völlinn.  Steinar lýsir aðdraganda ferðarinnar skemmtilega og þegar stóra stundin rann upp og krakkarnir eru staddir við göngin sem leikmenn fara um og standa þar tilbúnir í röð og bíða eftir hetjunum úr upphitun sem gefa þeim öllum „fimmu“ á leiðinni. „Ég var því svo ótrúlega heppinn að fá að snerta Giggs, Rooney, Van der Sar, Valencia og alla þessa leikmenn sem ég hef horft svo oft á í sjónvarpinu. Það var alveg geðveikt“, Segir Steinar og ekki skemmdi fyrir að Manchester United er uppáhaldsliðið hans.

Fleiri fréttir