Félagar í Drangey vilja bráðabirgðalög vegna strandveiða

Smábátar í höfninni á Hofsósi. MYND: ÓAB
Smábátar í höfninni á Hofsósi. MYND: ÓAB

Félagsfundur Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar haldinn 18. júlí 2025 mótmælir harðlega stöðvun strandveiða 16. júlí sl. Í tilkynningu frá félaginu segir að þetta sé sjötta árið í röð sem ekki er leyft að veiða út ágúst eins og lög frá 2018 gera ráð fyrir.

„Með því eru þúsundir manna á sjó og í landi sviptar störfum og tekjum auk þess neytendamarkaðir með fisk eru stórlaskaðir. Skorar fundurinn á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir að strandveiðar verði hafnar aftur, t.d. með setningu bráðabirðalaga á frumvarpi sem lá fyrir Alþingi, nánast fullrætt og afgreitt úr nefnd en var stöðvað með fordæmalausu málþófi minnihluta Alþingis,“ segir í tilkynningunni.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, sem nýverið fékk standveiðimálið í fangið hefur lýst því yfir að hann hafi ekki heimild til að gefa út nýjan kvóta nú en unnið sé að frum­varpi til að tryggja 48 daga strand­veiðar á næsta ári.

Fleiri fréttir