Félagsmót hestamannafélaganna

Nú um helgina verða félagsmót hestamannafélaganna þriggja í Skagafirði haldin hvert á sínum stað en Svaðamenn ríða á vaðið og halda sitt mót á Hofsgerðisvelli við Hofsós, föstudaginn 17. júní og hefst kl. 10:00. Keppt verður í A-, B-, barna og unglingaflokkum. Skráning á netfangið kross566@simnet.is fyrir kl. 20:00 á fimmtudagskvöldið.

Félagsmót Léttfeta verður haldið á þeirra félagssvæði, Fluguskeiði á Sauðárkróki, laugardaginn 18. júní og hefst það kl:10:00 á forkeppni í B-flokki. Skráningu lýkur í kvöld 16. júní en skráningar eru hjá Guðmundi á badboy@simnet.is og hjá Stefaníu í 847-9158. Keppnisgreinar: A- og B-flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkar og 100m skeið. Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hests við skráningu.

Félagsmót Stíganda verður einnig haldið laugardaginn18. júní á Vindheimamelum og byrjar klukkan 13:00. Keppt verður í A-, og B-flokki, barna- og unglingaflokki. Einnig verður keppt í stökki og brokki ef þátttaka næst. Skáningar skulu hafa borist fyrir 16.júní á netfangið fritz@mi.is Þar skal koma fram kennitala keppanda og IS númer hrossins

Fleiri fréttir