Félagsmót Léttfeta og Stíganda
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
19.08.2014
kl. 09.44
Félagsmót Léttfeta og Stíganda verður haldið laugardaginn 23. ágúst nk. á félagssvæði Léttfeta. Keppt verður í: A-flokki, B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, tölti og 100m skeiði.
Skráningar skulu berast á netfangið ingunnsandra@gmail.com fyrir fimmtudaginn 21. ágúst. Við skráningu þarf að koma fram IS númer hests og kennitala knapa.
Skráningargjald er 2000 kr. á hest en 1500 kr. fyrir hest í barnaflokki. Skráningafrestur er til föstudagsins 22. ágúst.
/Fréttatilkynning