Fella á tímabundið niður gatnagerðagjöld

Sveitastjórn Skagafjarðar samþykkti með átta atkvæðum gegn einu atkvæði Samfylkingarinnar að fella niður tímabundið gatnagerðargjöld af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi og Varmahlíð.

Í greinagerð með tillögunni segir að mikill skortur hafi verið á húsnæði í sveitarfélaginu ekki síst framboði á leiguíbúðum. Markmið þessarar samþykktar sé því að greiða enn frekar fyrir því að bæði einstaklingar og fyrirtæki sjái sér hag í að ráðast í byggingu íbúða, parhúsa eða einbýlishúsa í sveitarfélaginu.

Í bókun þar sem Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir gerir grein fyrir andstöðu sinni við málið segir m.a. „Undirrituð greiðir atkvæði gegn tillögu meirihlutans, þar sem um er að ræða að fella alfarið niður tekjustofn sveitarfélagsins á móti kostnaði sem sveitarfélagið hefur nú þegar lagt til. Heimild er nú þegar til staðar til niðurfellingar hjá þeim aðilum sem sækja um slíkt. Varhugavert er að samþykkja tekjuskerðingu fyrir sveitarfélagið þar sem ekki eru komnar fram tillögur frá starfshópi sem fjallar um heildarendurskoðun á rekstri sveitarfélagsins.“

Fleiri fréttir