Ferðafélag Skagafjarðar með spennandi ferðir

Ferðafélag Skagfirðinga hefur auglýst ýmsar spennandi ferðir sem verða á áætlun félagsins í sumar. Flestar eru ferðirnar farnar á laugardögum og taka allt frá fáeinum klukkutímum upp heilan dag. Auk ýmissa áhugaverðra áfangastaða í Skagafirði verður farið í Forsæludal í Austur-Húnavatnssýslu.

Ferðaáætlunin er sem hér segir:

13. júní Þórðarhöfði
Gönguferð um Þórðarhöfða. Ekið að höfðanum, eftir Höfðamöl sem fær mun jeppum. Sögur af því sem fyrir augu ber.
Sameinast í bíla á Faxatorgi kl 10:00 og við Kaupfélagið á Hofsósi kl. 10:30.
Fararstjóri: Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir.

28. júní (sunnudagur) Jónsmessuganga í Glerhallarvík
Þátttakendur koma sér sjálfir að Reykjum á Reykjaströnd. Gangan hefst kl. 21:00. Opið verður í Grettiskaffi og hægt að fara í laugarnar á eftir (aðgangseyrir í þær er 750 fyrir fullorðna og 350 fyrir börn).
Fararstjóri: Hjalti Pálsson.

4. júlí Forsæludalur í Austur-Húnavatnssýslu
Sameinast í bíla við Kaupfélagið á Hofsósi kl. 8:30, Faxatorg á Sauðárkróki kl. 9:00 og Varmahlíð kl. 9:30.
Fararstjóri: Sigurður Jónsson.

18. júlí Hrolleifshöfði
Dagsferð um þessa földu náttúruperlu í Sléttuhlíð þar sem margt óvænt ber fyrir augu. Lengd um 23 km, hækkun um 170 metrar.
Sameinast í bíla á Faxatorgi kl. 9:00 og við Kaupfélagið á Hofsósi kl. 9:30.
Fararstjórar: Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir og Kristín Sigurrós Einarsdóttir.

25. júlí Gönguferð suður Laxárdal í Trölla.
Ferðin tekur 6-7 klukkustundir.
Sameinast í bíla frá Kaupfélaginu á Hofsósi kl. 8:30 og frá Faxatorgi kl. 9:00.
Fararstjóri: Ágúst Guðmundsson.

8. ágúst Kaldbakur í Sæmundarhlíð
Fjallganga með töluverðri hækkun.
Sameinast í bíla frá Kaupfélaginu á Hofsósi kl. 9:00 og Faxatorgi kl. 9:30. Ekið að Sólheimum í Sæmundarhlíð.
Fararstjóri: Trond Olsen.

22. ágúst Siglufjarðarskarð
Dagsferð frá Hóli í Siglufirði, yfir Skarðið og endað á Hraunum í Fljótum.
Sameinast í bíla við Faxatorg kl. 9, Kaupfélagið á Hofsósi kl. 9:30 og Ketilás kl. 10:00. (Bílstjóra þarf til að ferja bíla úr Siglufirði í Fljótin að göngu lokinni).
Fararstjóri: Stefán Stefánsson.

Fleiri fréttir