Ferðafélagið stendur fyrir bílferð í Ingólfsskála
Ferðafélag Skagafirðinga ætlar að standa fyrir bílferð upp í Ingólfsskála á laugardaginn kemur, ef næg þátttaka fæst og viðrar sæmilega til fjallaferða.Lagt verður af stað frá Faxatorgi klukkan 9 að morgni.
Eftir gott stopp í skálanum verður haldið heim og komið niður í Eyjafjörð. Ferðalangar leggja sér til eigið nesti. Þátttökugjald er kr. 6.000 fyrir félaga í FÍ en 7.000 fyrir aðra. Stjórnarmenn FS leggja til bíla sína og verður því takmarkaður sætafjöldi í boði-fyrstir koma, fyrstir fá,” segir í tilkynningu frá félaginu.
Þessi ferð er jafnframt sú síðasta sem félagið stendur fyrir í sumar. Þátttaka í ferðir sumarsins hefur verið góð. Farnar hafa verið velheppnaðar ferðir í Glerhallavík, Þórðarhöfða, Hrolleifshöfða, Laxárdal og Forsæludal. Ferð um Siglufjarðarskarð, sem vera átti um síðustu helgi, féll niður af óviðráðanlegum orsökum og ferð á Kaldbak fyrr í ágúst var aflýst vegna veðurs.