Ferðafélagsferð í Hrolleifshöfða
feykir.is
Skagafjörður
16.07.2015
kl. 12.22
Ferðafélag Skagfirðinga stendur fyrir gönguferð í Hrolleifshöfða í Sléttuhlíð á laugardaginn. Allir eru velkomnir í ferðina en það verður sameinast í bíla á Faxatorgi á Sauðárkróki kl. 9:00 og við KS Hofsósi kl. 9:30.
Frá Hofsósi verður ekið að eyðibýlinu Mýrum í Sléttuhlíð sem er um 15 mínútna akstur. Hringurinn sem genginn verður er um 23 kílómetrar og hækkun um 170 metrar. Má reikna með að ganga taki um 7-8 tíma og nauðsynlegt er að taka með sér nesti og hlýjan fatnað.
Fararstjórar í ferðinni eru þær Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir og Kristín Sigurrós Einarsdóttir. Fylgjast má með ferðaáætlun félagsins á ffs.is.