Ferðafélagsferð um Laxárdal

Ferðafélag Skagfirðinga stendur fyrir gönguferð 25. júlí þar sem farið verður frá Illugastöðum á Laxárdal ytri, suður Laxárdal að Trölla, skála FS. Haldið þaðan niður Kálfárdal. Um er að ræða um það bil fimm klukkustunda ferð með lítilli hækkun. Vaða þarf ána á Trölleyrum.

Þátttakendur safnast saman í bíla á Faxatorgi kl. 10 og ekið verður að Illugastöðum, þar sem gangan hefst. Fararstjóri er Ágúst Guðmundsson.

Fleiri fréttir