Fíbra sigraði Toppstöðina
Lokaþáttur Toppstöðvarinnar, raunveruleikaþáttar RÚV þar sem fylgst er með hvernig frumkvöðlum tekst að fullvinna vöru sína og koma á markað, var sýndur í beinni útsendingu á RÚV í gærkvöldi. Það var frumkvöðlaverkefnið Fíbra, með Reginni Grímssyni, í fararbroddi sem bar sigur úr býtum eftir símakosningu. Reginn hefur starfað á Sauðárkróki um árabil en verkefni hans sigraði jafnframt Ræsingu í Skagafirði, samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Svf. Skagafjarðar og Kaupfélags Skagfirðinga, í febrúar sl.
Tæplega 130 verkefni sóttust eftir að vera með í þáttunum en aðeins átta voru valin til þátttöku. Upptökulið fylgdist með liðunum í sex mánuði á meðan þau þróuðu hugmyndir sínar og fengu aðstoð sérfræðinga.
Fíbra býður upp á nýja gerð byggingareininga úr trefjastyrktu plasti, með kjarna úr steinull, og er lokuð á köntum. Hús sem byggð eru með einingum Fíbra eru 25% prósent ódýrari en sambærileg hús á markaði og hægt er að byrja á litlu húsi sem svo er hægt að byggja við, samkvæmt upplýsingum á Rúv.is.
Reginn segir hugmyndina hafa kviknað í desember 2013, þegar hann var á Sauðárkróki að smíða skip úr trefjagleri. „Ég var að æfa karlana mína að nota nýjar vélar til trefjaplastgerðar í febrúar 2014 og fékk nokkrar fermetra af steinull frá Steinullarverksmiðjunni til að gera tilraunir með að tengja saman trefjagler og steinull. Þá rann upp fyrir mér hvernig ég gæti búið til lokaðar samlokur (komposid) úr trefjaplasti með innbyggðu burðarvirki og steinull sem einangrun. Ég sá strax augljósan og gríðarlegan sparnað ásamt því að þessi hús myndu ekki leka frekar en skipin sem ég hef smíðað, en ég smíðaði fyrsta bátinn úr trefjagleri árið 1977 og hef smíðað yfir 400 báta síðan og enginn þeirra lekur,“ sagði Reginn í samtali við Rúv.
„Eftir að hafa gert nokkrar tilraunir með samsetningu efnanna og yfirborðsáferð húseininganna sá ég að eiginleikar trefjaglers og steinullar fara einstaklega vel saman og hægt að gera níðsterkar húseiningar úr steinull með trefjaglerkápu og innbyggðu burðarvirki. Í Fibra veggnum er rakasperran gríðarlega sterkur 2 mm þykkur trefjaplastveggur. Hefðbundna rakasperran sem er 0,2 mm plastfilma eins og við þekkjum hana er því óþörf.
Í lok maí 2014 tók ég þátt í samkeppni um viðskiptahugmynd til að auka fjölbreytni atvinnulífs í Skagafirði og fékk þar fyrstu verðlaun og höfðinglega peningagjöf og stuðning við að þróa hugmyndina. Nýsköpunarmiðstöð Íslands ásamt Kaupfélagi Skagafjarðar og Sveitarfélagið Skagafjörður stóðu að þessari samkeppni „Ræsing Skagafjörður“.
Vorið 2015 fór ég markvisst að þróa hugmyndina áfram og fékk til liðs við mig þverfaglegt teymi sem í eru Andri Thor Gunnarsson sérfræðingur í trefjaplastefnum, Haraldur Ingvarsson arkitekt og Helga Hinriksdóttir teymisstjóri,“ sagði Reginn. Hann sagði jafnframt mikla þörf fyrir ódýrara og hagkvæmara húsnæði, sem er betra fyrir umhverfið og þarf minna viðhald.
Í gærkvöldi sýndu liðin þjóðinni verk sín í beinni útsendingu, fengu tækifæri til þess að vöru sinni á markað og fá áhorfendur í lið með sér. Úrslitin voru tilkynnt við mikinn fögnuð áhorfenda. Í lokin spurði Vilhelm Anton Jónsson þáttastjórnandi Reginn hvort þetta væri skagfirski sandurinn?
„Já, þeir vissulega hjálpuðu til. Þar hitti maður fólk sem trúði á þetta og hjálpaði mér.“ Þá sagði hann næstu skref að finna einhvern fjárfesta til svo hægt sé að koma upp góða verksmiðju með góða línu þar sem hlutirnir renna hratt í gegn, svo þau geti lækkað byggingakostnað verulega.
Hér má sjá þáttinn á Rúv.is.