Fimm fengu styrk úr Húnasjóði

Frá Hvammstanga. Mynd FE
Frá Hvammstanga. Mynd FE

Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra þann 31. júlí sl. var tekin fyrir úthlutun úr Húnasjóði. Alls bárust sjö umsóknir um styrk úr sjóðnum að þessu sinni og uppfylltu fimm þeirra skilyrði til úthlutunar.

Hjónin Ásgeir Magnússon og Unnur Ásmundsdóttir stofnuðu sjóðinn í þeim tilgangi að minnast starfs Alþýðuskóla Húnvetninga sem Ásgeir stofnaði og rak á Hvammstanga árin 1913-1920.  Sjóðurinn hefur það hlutverk að stuðla að endurmenntun og fagmenntun í Húnaþingi vestra.

Þeir sem hlutu styrk úr sjóðnum að þessu sinni, hver um sig kr. 100 þúsund, eru eftirtaldir:

     Albert Jóhannsson, nám til Bs í viðskiptafræði.
     Guðrún Lára Magnúsdóttir, nám til diploma í jákvæðri sálfræði.
     Ingunn Elsa Rafnsdóttir, félagsliðanám.
     Jóhannes Geir Gunnarsson, nám í búfræði.
     Unnur Jóhannsdóttir, nám til Bs í búvísindum.    

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir