Fimm þættir frá Skottu á ÍNN

Skotta kvikmyndafjelag, Árna Gunnarssonar á Sauðárkróki,  er að ljúka framleiðslu á fimm þátta vandaðri sjónvarpsþáttaröð, sem sýnd verður á ÍNN í febrúar og mars. Þeir verða einnig sýndir á Fræðaþingi landbúnaðarins í mars. Fyrsti þáttur fer í loftið nk. mánudag klukkan 20:30.

Þættirnir eru um 23 mínútur hver og allir framleiddir og frágengnir á Sauðárkróki. Sá fyrsti ber heitið Ljóshærði víkingurinn á Nýja Sjálandi og fjallar um Valdimar Einarsson sem er bóndasonur úr Dölunum, sem flutti ungur til Nýja Sjálands, menntaði sig  og stofnaði þar fjölskyldu og fyrirtæki. Áhugi hans á landinu kviknaði við lestur nýsjálensks búfræðirits sem faðir hans var áskrifandi að. Valdemar rekur metnaðarfullt ráðgjafafyrirtæki fyrir bændur á Nýja Sjálandi en ferðast öðru hvoru til Íslands og hvetur íslenska bændur til að læra af starfsbræðrum sínum hinum megin á hnettinum.

Aðrir þættir eru:

Yfir hálfan hnöttinn - Slátrararnir frá Nýja Sjálandi.

Í ágústmánuði á hverju ári  fer hópur af slátrurum og kjötiðnarmönnum frá Nýja Sjálandi til Íslands til að vinna í 3 mánuði í Sláturhúsi KS á Sauðárkróki. Þetta eru afkomendur Evrópubúa sem fluttu til Nýja Sjálands og Máranna (Maories) sem voru þar fyrir en sá þjóðflokkur stundaði mannát á sínum tíma.  Þarna mætast tveir menningarheimar og íslendingarnir fylgjast forvitnir með þegar stoltir Nýsjálendingarnir dansa Haka berir að ofan í snjókomu og frosti við strönd Norður Íshafsins.

Heimur sem aldrei sefur.

Íslensk loðdýrabú eru í dag 21 en voru fyrir 15 árum 210 talsins. Samt eru framleidd fleiri minkaskinn á Íslandi nú en þá, betri og verðmætari. Andstætt því sem var er loðdýrarækt arðbær búgrein, sem skapar hundruð milljóna í gjaldeyristekjur. Í þessum þætti er varpað ljósi á orsakir þessara breytinga. 

Þátturinn hefst á loðdýrabúi Einars Einarsonar, bónda og ráðunauts á Skörðugili í Skagfirði.  Fylgt er ferlinu frá framleiðanda til kaupanda, sem er stærsta skinnauppboðshús í heimi Copenhagen Fur í Kaupmannahöfn. Chopenhagen Fur vinnur náið með framleiðendum og tískuheiminum við þróun og hönnun á nýjum vörum úr minkaskinni. 

Landnám íslenska hestsins í Ástralíu.

Amy Haldane kom til Íslands sumarið 2009 til þess að læra reiðlist á Sumarskóla íslenska hestsins að Hólum í Hjaltadal. Að námskeiðinu loknu ferðaðist hún um landið og festi kaup íslenskum kynbótagæðingi, sem hún flutti síðan út til Ástralíu. Amy Haldane er formaður Íslandshestafélagsins í Ástralíu en þar í landi eru um 100 íslenskir hestar og á hún og fjölskyldan um helming þeirra.

Öskubuskuævintýri í Skvöde.

Gothia nýsköpunargarðarnir í Skvöde í Svíþjóð voru á síðasta ári verðlaunaðir sem þeir bestu sinnar tegundar innan Evrópusambandsins. Flaggskip Gothia eru tvö 50-60 manna hugbúnaðarfyrirtæki sem eru í eigu og stjórn Íslendinga. Í fararbroddi þessara athafnasömu manna eru þrír Skagfrðingar sem í denn þóttu stundum baldnir á sínum heimaslóðum, slógust á böllum og voru reknir úr skólum. Skagfirðingarnir eru heimsóttir í Skvöde og kom það í ljós  að þeir eru jafn sókndjarfir og í gamla daga. Núna þurfa þeir ekki að sanna sig  í slagsmálum á sveitaböllum, heldur í slagsmálum í sænsku viðskiptalífi og standa uppi sem sigurvegarar.

Fleiri fréttir