Fimmtíu ára búfræðingar í heimsókn
feykir.is
Skagafjörður
14.09.2015
kl. 11.09

Einar Sigfússon, sem situr fremst. Síðan f.v. Kristófer Sverrisson Blönduósi, Jóhannes Árnason Höskuldarnesi, Aðalsteinn Arnórsson Akureyri, Steingrímur Þorsteinsson Hóli, Jónatan Hermannsson Tungnamaður, Halldóra Ragnarsdóttir Reykjavík, Árni Sigurðsson Marbæli, Maríus Lund frá Nýhöfn, Erla Björk rektor, Tryggvi Eiríksson frá Búrfelli, Þorvaldur Ágústsson Hvolsvelli, Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum, Jón Sigurðsson frá Hnjúki, Guðmundur Þórarinsson Vogum, Sigurgeir Þórðarson ættaður úr Reykjavík. Ljósm./Guðmundur B. Eyþórsson
Þann 29. ágúst komu 50 ára Hólanemar í heimsókn ásamt mökum og samstarfsfólki frá námsárunum. Á vef Hólaskóla segir að eftir skemmtilegt spjall, hlátrasköll og myndatöku var rennt við í aðstöðu hestafræðideildar Háskólans á Hólum og skeggrætt um gamla tíma og nýja.
Að loknu kaffisamsæti, afhentu nemendur skólanum rausnarlega gjöf til styrktar kaupum á upplýsingaskjá fyrir háskólann.
„Skjánum hefur verið valinn staður í anddyri skólans og verður honum ætlað að verða gestum og gangandi til leiðbeiningar um starfsemi háskólans og Hólastaðar. Háskólinn á Hólum þakkar höfðinglega gjöf og hlýhug í garð skólans,“ segir á vefnum.