FISK miðlar af reynslu sinni
Fyrir skemmstu fékk FISK Seafood forvarnarverðlaun VÍS fyrir framúrskarandi árangur í forvarna- og öryggismálum. Verðlaunin voru afhent á ráðstefnu sem VÍS og Vinnueftirlitið efna árlega til sunnan heiða. Hún er sú stærsta sinnar tegundar á landinu og vegna mikils áhuga hefur nú verið ákveðið að færa út kvíarnar og breiða boðskapinn út á Norðurlandi með forvarnarráðstefnu í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 2. apríl nk.
Í tilefni þess verður Guðrún Sighvatsdóttir öryggisstjóri FISK Seafood á meðal fyrirlesara þar sem hún fer yfir hvernig fyrirtækið hefur náð þessum frábæra árangri.
„Þegar forvarnasamstarfið við VÍS hófst fyrir nokkrum árum sáum við ekki fyrir hve árangursríkt það gæti orðið. Tekist hefur að fækka slysum til sjós með bættum öryggisbúnaði og sérstaklega samstilltu átaki starfsmanna okkar sem hafa allir komið að þessu með breyttri og jákvæðir hugsun. Það er okkur mikil ánægja að leggja forvarnastarfi lið með því að miðla þeirri reynslu og þekkingu sem hér hefur áunnist á undanförnum árum.“
Norðlendingar bera uppi ráðstefnuna þar sem fulltrúar fyrirtækja og sveitarfélaga vítt og breytt um fjórðunginn miðla af reynslu sinni. Þá segir Dalvíkingurinn Kristján Guðmundsson frá því þegar hann stórslasaðist við löndun, lét næstum lífið og hvernig vinnuveitandinn brást við í kjölfarið með úrbótum á vinnulagi.
Aðgangur á ráðstefnuna er ókeypis og öllum heimil þátttaka. Skráning og allar frekari upplýsingar er að finna á vef VÍS.