FISK Seafood hlaut Forvarnarverðlaun VÍS
FISK Seafood ehf. á Sauðárkróki hreppti Forvarnarverðlaun VÍS 2014 sem afhent voru á forvarnaráðstefnunni Skipulag og stjórn öryggismála sem haldin var á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Forvarnarverðlaun VÍS eru veitt fyrir framúrskarandi forvarnir og öryggismál og er FISK Seafood þar í fremstu röð.
Jafnframt fengu Gæðabakstur / Ömmubakstur ehf. og Klettur – sala og þjónusta ehf. viðurkenningu frá VÍS fyrir góðan árangur í forvörnum og öryggismálum.
Haustið 2009 einsetti yfirstjórn FISK Seafood ehf. sér að efla öryggismál sjómanna og innleiða bætta öryggismenningu um borð í skipaflota sínum. Skipaður var ábyrgðarmaður í landi til að samræma auknar kröfur og áherslur í öryggismálum sjómanna og sérstöku skipulagi þessara mála komið á um borð í skipum útgerðarinnar. Gert var áhættumat starfa og tekin upp virk atvikaskráning á næstum því óhöppum og slysum. Þetta leiddi til að þess að öryggismál í allri starfsemi fyrirtækisins, bæði landi og sjó, voru samræmd og gerð hluti af gæðastjórn fyrirtækisins.
FISK Seafood er eitt stærsta útgerðarfyrirtæki landsins með 260 starfsmenn, þar af 138 sjómenn. Það er ekki aðeins leiðandi fyrirtæki í öryggismálum sjómanna heldur einnig í fiskvinnslu. Til að mynda hefur eigið mánaðarlegt eldvarnareftirlit verið tekið upp í landvinnslunni. Sömuleiðis hafa forsvarsmenn fyrirtækisins verið ötulir að benda þjónustuaðilum og vertökum þeirra á að fara beri eftir vinnuverndarlögunum og mælst til þess að slíkt sé gert þegar unnið er fyrir FISK Seafood.
Fyrirtækið er fyrirmyndardæmi um hve miklum árangri hægt er að ná í efla forvarnir og öryggismál fyrirtækja þegar yfirstjórn sýnir þeim málaflokki raunverulegan og sýnilegan stuðning.
Þetta er í fimmta sinn sem Forvarnarverðlaun VÍS eru veitt fyrirmyndarfyrirtækjum á þessu sviði. Áður hafa Félagsbústaðir hf., Strætó bs., Rio Tinto Alcan og Þörungaverksmiðjan á Reykhólum hreppt verðlaunagripinn Að byrgja brunninn sem listamaðurinn Ólafur Geir Þorvaldsson gerði fyrir fyrstu forvarnaráðstefnu VÍS árið 2010.
Á meðfylgjandi mynd eru: Auður Björk Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs VÍS, Guðrún Sighvatsdóttir öryggisstjóri FISK, Erla Jónsdóttir gæða- og fjármálastjóri FISK, Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS og Gísli Níls Einarsson sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS.