Ánægja einstaklinga í starfi til umfjöllunar á fyrsta fræðafundi vetrarins
feykir.is
Skagafjörður
24.09.2015
kl. 09.12
Fyrsta erindi vetrarins á vegum Guðbrandsstofnunar verður í Auðunarstofu fimmtudaginn 24. sept. kl. 17:00 en þá flytur Sigurður Óli Sigurðsson áhugavert erindi sem hann nefnir: „Vinnustaðasálfræði: Helstu kenningar um ánægju einstaklinga í starfi“.
Fræðafundir Guðbrandsstofnunar eru haldnir í Auðunarstofu á Hólum. Í boði eru kaffiveitingar og aðgangur er ókeypis.