Fjögur fyrirtæki gerðu tilboð í sorphirðu í Húnaþingi vestra
Fjögur fyrirtæki hafa gert tilboð í sorphirðu og rekstur gámastöðvar í Húnaþingi vestra. Þetta kom fram þegar Ríkiskaup opnaði tilboð fyrir hönd Sveitarfélagsins Húnaþings vestra í gær.
Lesin voru upp nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæð og hvort um frávikstilboð sé að ræða. Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd útboðsins.
Fyrirtækin voru Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf. sem var með heildartilboðsfjárhæðina 1.318.725 kr., Íslenska Gámafélagið ehf. með heildartilboðsfjárhæðina 1.841.850 kr., HH Gámaþjónusta ehf. með heildartilboðsfjárhæðina 1.738.179 kr. og Urðun ehf. sem var með heildartilboðsfjárhæðina 1.117.232 kr.
Nánari upplýsingar má finna á vef Ríkiskaupa.