Fjögur lið frá Sauðárkróki í Metabolicleikunum

Laugardaginn 14. nóvember hittust yfir 100 Metabolic iðkendur af landinu öllu á Selfossi og kepptu í líkamlegu hreysti og sendi Þreksport á Sauðárkróki fjögur lið til leiks. Á vef Þreksports segir að Metabolic æfingakerfið hafi verið kennt í Þreksport á Sauðárkróki um allnokkurt skeið undir handleiðslu þjálfaranna Guðrúnar Helgu og Friðriks, og njóti mikilla vinsælda.
„Mikil stemming var í íþróttahúsinu við Vallaskóla þar sem keppnin fór fram og voru áhorfendur duglegir að hvetja sitt fólk áfram í krefjandi keppnisbrautinni. Farið var í gegnum einstaklings-, para- og liðakeppni með 4 í hverju liði, og voru veitt verðlaun í öllum flokkum. Keppendur voru hvattir til að vera í búningum á meðan á keppni stóð og því mátti sjá allskyns fígúrur og þekktar persónur á keppnisgólfinu. Ánægjulegt var að sjá hversu mikil samstaða og liðsheild einkenndi hópana og gleðin var allsráðandi í bland við keppnisskapið. Gleðin var ríkjandi frameftir kvöldi þar sem hóparnir sameinuðust í mat og kvöldskemmtun í félagsheimilinu Hlíðskjálf,“ segir á vef Þreksports.
Sem fyrr segir mættu fjögur lið frá Þreksport til leiks og eitt par tók þátt í parakeppni. Með í för voru einnig dyggir stuðningsmenn ásamt þjálfurum sem hvöttu sitt fólk til dáða. Það voru Skagfirðingarnir Dagný Gunnarsdóttir og Hjörtur Elefsen gerðu sér lítið fyrir og fóru með sigur af hólmi í parakeppninni og enduðu í 1. sæti af 14 pörum sem tóku þátt. Allir sigurvegarar voru leystir út með veglegum verðlaunum.
Stefnt er að því að Metabolicleikarnir fari fram á Sauðárkróki á næsta ári.