Fjölbreytt dagskrá Hólahátíðar

Hólahátíð á Hólum í Hjaltadal hófst í gær og státar hátíðin af fjölbreyttri dagskrá. Í dag, laugardaginn 15. ágúst, var lagt af stað í Pílagrímagöngu frá Gröf kl. 10 og verður gengið heim að Hólum með biblíulestrum.

Klukkan 13 verður gengið yfir Hrísháls í fylgd Önnu Þóru Jónsdóttur frá Vatnsleysu og gengið inn í söguna.  Lagt er af stað frá Enni kl. 13:00 og tekur gangan 3-4 tíma heim að Hólum. „Á veginum verða hin ýmsu óvæntu fyrirbæri og ævintýraverur úr raunveruleika fyrri tíma,“ segir í dagskránni. Sundlaugin á Hólum er opin kl. 14:00-18:00

Kl. 17:00 er dagskrá fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra í Hóladómkirkju í umsjá Helga Zimsen og Rósu Jóhannesdóttur.

Kl. 18:00 er kvöldverður, hlaðborð með gómsætum Biblíumat Undir Byrðunni.  Uppskriftirnar eru úr bók sr. Svavars Jónssonar.

Vígsla Höllu Rutar til sóknarprestsembættis Hofsóss- og Hólaprestakalls

Á morgun, sunnudaginn 16. ágúst, kl. 11:00 flytur Dr. Gunnlaugur A. Jónsson erindið:  Áhrifasaga Saltarans. Um áhrif Davíðssálma í sögu og samtíð á bókmenntir, listir og kvikmyndir.

Kl. 14:00 hefst hátíðarmessa í Hóladómkirkju og prestsvígsla en verður  Mag. theol Halla Rut Stefánsdóttir vígð til að gegna sóknarprestsembætti í Hofsós- og Hólaprestakalli. Að henni lokinni verður veislukaffi í Hólaskóla.

Kl. 16:30 er hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju, Ólöf Nordal innanríkisráðherra flytur hátíðaræðu og Ragnhildur Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags flytur ávarp.Kirkjukór Hóladómkirkju flytur biblíuljóð.

Fleiri fréttir