Fjölbreytt sumardagskrá á Hólum

Búið er að gefa út sumardagskrá Hóladómskirkju og er hún fjölbreytt að vanda. Guðsþjónustur verða alla sunnudaga frá 14. júní til 23. ágúst kl. 11:00. Einnig verða fjölskylduvænir sumartónleikar alla sunnudaga frá 7. júní til 9. ágúst kl. 14:00.

 

Í hádeginu er svo boðið upp á súpu og salatbar og hádegisverðarmatseðil á veitingahúsinu Undir Byrðunni, svo það er upplagt að gera sér dagamun á Hólum í Hjaltadal í sumar.

Flytjendur á tónleikunum á sumartónleikunum verða:

7. júní Blásarakvintettt Reykjavíkur

14. júní Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson - söngur og gítar

21. júní Sigrún Magna Þórsteinsdóttir -orgel

28. júní Barokkhátíð

5. júlí Hallfríður Ólafsdóttir og Ármann Helgason -flauta og klarinett

12. júlí Gunnar Kvaran og Guðný Guðmundsdóttir - cello og fiðla

19. júlí Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir - söngur, gítar og fiðla

26. júlí Bára Grímsdóttir og Chris Foster söngur, gítar og langspil

2. ágúst Svavar Knútur - söngur og gítar

9. ágúst Benni Hemm Hemm -söngur og gítar

16. ágúst Hólahátíð helguð 200 ára afmæli Biblíufélagsins - Biblíusýning í Auðunarstofu

 

Vakin er athygli á því að aðgangur á tónleikana er ókeypis. Opið verður í Hóladómkirkju og Auðunarstofu alla daga frá kl. 10 til 18, en þá er stutt bænastund. Á Hólum er einstaklega fallegt tjaldstæði og eru allir boðnir hjartanlega velkomnir heim að Hólum á 200 ára afmæli Biblíufélagsins.

Fleiri fréttir