Fjöldi laga barst í Dægurlagakeppni Sauðárkróks

Yfir 65 lög bárust í Dægurlagakeppni Sauðárkróks sem fram fer á Sæluviku Skagfirðinga þann 6. maí nk. Nú hafa tíu lög verið valin til þess að keppa um Sæluvikulagið 2011og hafa lagahöfundar þrjár vikur til að fullgera sín lög.

Að sögn Sigurpáls Aðalsteinssonar eins aðstandenda keppninnar bárust lög alls staðar að af landinu og ljóst að um hörku keppninverður að ræða á Sæluvikunni. –Við fórum af stað með þá von að milli 30 og 40 lög myndu berast, svo ég er gríðarlega ánægður með þátttökuna, segir Sigurpáll eða Siggi Doddi eins og hann er oftast kallaður. Hljómsveit Sigga Dodda,Von, mun spila á balli eftir keppni en ekki er búið að ákveða hvort hljómsveit sjái um undirleik á keppninni sjálfri eða hvort leikið er af diski eins og gerist í Júróvision. Samningar hafa tekist við Exton um ljós og hljóðvinnslu á keppninni og segir Siggi að búast má við miklu ljósasjóvi.

Fleiri fréttir