Fjölmenn útför Stefáns Guðmundssonar
Stefán Guðmundsson fyrrverandi alþingismaður og stjórnarformaður Kaupfélags Skagafirðinga var borinn til grafar í gær og fór útförin fram í Sauðárkrókskirkju. Fjöldi fólks kom að jarðaförinni enda var Stefán virtur af sínum störfum bæði heima í héraði sem og annars staðar.
Talið er að um sjöhundruð manns hafi verið viðstaddir útförina þar sem kirkjan var þéttsetin sem og Safnaðarheimilið, félagsheimilið Bifröst og Mælifell en á þeim stöðum gat fólk fylgst með athöfninni á sýningartjaldi.
Að athöfn lokinni var fólki boðið að þiggja veitingar á Sal Fjölbrautaskólans.