Fjölmenni á göngustíganámskeiði
Nýlega var árlegt göngustíganámskeið fyrir ferðamálanema haldið. Þar var unnið að ýmsum verkefnum er tengjast því að hanna og búa til göngustíga. Námskeiðið er samstarf Hólaskóla við sjálfboðaliða í umhverfisvernd, verkefni sem Umhverfisstofnun heldur utan um og þaðan komu bæði einn sérfræðingur og annar langtímasjálfboðaliði. Með þessu samstarfi, sem staðið hefur í rúm 10 ár, hefur byggst upp mikilvæg þekking er kemur nemendum að góðum notum við að meta göngustíga og hanna þá með þarfir ferðamanna og náttúru í huga. Einnig gefur þetta góða innsýn inn í mikilvægi fagmennsku við lagningu göngustíga.
Fjölmenni var á námskeiðinu sem er hluti af diplómunámi og 1. árs námi til BA-gráðu í ferðamálafræði, og mikill kraftur og gleði hjá öllum þátttakendum. Eftir þrjá daga og heljarinnar puð eru komnar nýjar og fallegar gönguleiðir um Hólaskóg, sem nemendur og allir þeir sem vinna og heimsækja Hólastað eiga vonandi eftir að njóta lengi.
Kennarar á námskeiðinu voru þeir Kjartan Bollason og Bjarni Kristófer Kristjánsson frá Hólaskóla, Chas Goemans, sérfræðingur frá Sjálfboðaliðum í umhverfisvernd frá Umhverfisstofnun og Philip Eastwood, langtímasjálfboðaliði hjá sömu stofnun. Hólaskóli þakkar þeim sérstaklega frábært framlag. Síðast en ekki síst vilja kennarar þakka nemendum fyrir gríðarlega gott starf, mikinn áhuga, mikla gleði og gæði. Svo eru allir hvattir til að skoða göngustígana og nota þá sem mest