Fjölmennt námskeið í brunaþéttingum

Námskeið í brunaþéttingum verður haldið fyrir byggingamenn í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á morgun, fimmtudaginn 13. febrúar, kl. 13:00. Að sögn Ólafs Ástgeirssonar, sviðsstjóra Bygginga- og mannvirkjasviðs Iðunnar fræðsluseturs, eru um 40 manns  skráðir á námskeiðið.

„Þetta er örugglega besta aðsókn sem við höfum fengið á námskeið á Sauðárkróki. Þarna verða samankomnir byggingamenn úr Skagafirði og víðar að,“ segir Ólafur.

Þetta er námskeið er fyrir alla sem koma að byggingaframkvæmdum. Markmið þess er að þátttakendur kunni skil á reglum um brunaþéttingar og efnum notuð til þeirra. Að loknu námskeiði fá þátttakendur viðurkenningu frá Mannvirkjastofnun sem er samstarfsaðili um námskeiðið. Kennari námskeiðsins er Guðmundur Gunnarsson frá Mannvirkjastofnun.

Fleiri fréttir