Fjölnet fær vottun á ISO 27001 stjórnkerfi upplýsingaöryggis
Fjölnet hf. hefur fengið staðfesta vottun á ISO 27001 stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Vottunin nær yfir alla starfsemi Fjölnets og fellur þar undir m.a. rekstur hýsingar, öryggisafritun, öryggisvitund starfsmanna, umgengni um skjalageymslur og aðgengi annarra en starfsmanna um starfsstöðvar Fjölnets.
Það er alþjóðlega vottunarfyrirtækið BSI (British Standards Institution )sem staðfestir vottunina.
Haft er efir Gísla Sigurðssyni framkvæmdastjóra Fjölnets að þetta sé gæðastimpill á verkferla Fjölnets og staðfesting á faglegum vinnubrögðum starfsmanna við meðferð upplýsinga sem að lúta að viðskiptavinum Fjölnets. Einnig fellur hér undir ábyrgð á rekstri tölvukerfa og öryggisafritun.
Fjölnet er því mjög góður kostur fyrir þá sem að vilja hýsa rekstur tölvukerfa hjá traustum aðila. Viðskiptavinir Fjölnets geta því verið fullvissir um að Fjölnet standist ýtrustu kröfur um rekstur hýsingar og öryggisafritunar samkvæmt ISO 27001.
Fréttatilkynning