Fjölnet valið til að reka tölvukerfi fyrir Umhverfisstofnun

Á mynd frá vinstri Kristín Linda Árnadóttir forstjóri UST og Sigurður Pálsson framkvæmdarstjóri Fjölnets
Á mynd frá vinstri Kristín Linda Árnadóttir forstjóri UST og Sigurður Pálsson framkvæmdarstjóri Fjölnets

Umhverfisstofnun hefur gert samning við Fjölnet sem felur í sér að setja upp, hýsa og reka tölvukerfi fyrir stofnunina. Samningurinn kemur í kjölfar útboðs í gegnum Ríkiskaup þar sem Fjölnet var hlutskarpast.

Hlutverk Umhverfisstofnunar er að stuðla að velferð almennings með því að beita sér fyrir heilnæmu umhverfi, öruggum neysluvörum og verndun og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.  Hjá UST starfar metnaðarfullt fólk með þekkingu og reynslu sem ber hagsmuni umhverfisins fyrir brjósti.

Fjölnet býður Umhverfisstofnun velkomna í hóp ánægðra viðskiptavina.

 

/Fréttatilkkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir