Fjölnismenn kipptu löppunum undan Stólunum

Tindastólsmenn riðu engum hesti úr Grafarvoginum í gær eftir að lið Fjölnis fór frekar illa með Stólana sem náðu sér ekki á strik nema rétt á fjögurra mínútna kafla undir lok þriðja leikhluta. Það dugði að sjálfsögðu skammt og heimamenn hirtu því stigin dýrmætu en lokatölur urðu 106-87.

Fjölnismenn hófu leik um leið og flautað var til leiks og komust í 13-0 og skemmst frá því að segja að Tindastólsmenn voru aldrei nálægt því að jafna þann mun. Bárður tók leikhlé og í kjölfarið gerði Miller fyrstu stig Stólanna en Fjölnismenn komust síðan í 18-2 og þá voru ekki liðnar 4 mínútur af leiknum! Sem betur fer fyrir strákana var Þröstur Leó með stillt á túrbó og sá til þess að eitthvað lífsmark væri Stólamegin á stigatöflunni. Staðan 36-21 að loknum fyrsta leikhluta.

Fjölnir jók muninn í 20 stig snemma í öðrum leikhluta, 44-24, og varð munurinn mestur 23 stig, 49-26. Tindastólsmenn voru bara alls ekki að ná sér á strik í vörn eða sókn en náðu þó að hægja aðeins á sprækum Fjölnismönnum síðustu mínútur leikhlutans. Staðan í hálfleik 55-37.

Munurinn á liðunum hélst svipaður fram eftir þriðja leikhluta en um hann miðjan kom besti kafli Tindastóls þar sem strákarnir minnkuðu muninn úr 64-45 í 74-64 en á þeim kafla stigu Þröstur og Svabbi upp. Staðan 76-64 þegar fjórði leikhluti hófst og nú var smá von til þess að Stólarnir færu að nota bensínfótinn. Það voru hins vegar heimamenn sem gerðu fystu 5 stigin og eftir það áttu Stólarnir aldrei séns og Fjölnir tryggði sér öruggan 19 stiga sigur, 106-87.

Fjölnismenn voru sterkari á öllum sviðum í gærkvöldi og varla hægt að segja að Stólarnir hafi mætt til leiks. Lið Fjölnis lék af miklum krafti en breiddin er ekki mikil í liðinu. Það kom þó ekki að sök í gærkvöldi og réðu Stólarnir lítið við Nathan Walkup sem tók 12 fráköst og gerði 35 stig. Igor Tratnik spilaði fyrsta leik sinn fyrir Tindastóls, gerði 10 stig og tók 7 fráköst. Kappinn spilaði í rétt tæpar 16 mínútur og náði sér í 5 villur á þeim tíma. Þröstur Leó var í miklum ham og gerði 23 stig í leiknum og hefði nú verið skemmtilegra fyrir hann ef fleiri leikmenn hefðu tekið þátt í partíinu með honum. Þá skilaði Svabbi niður 14 stigum. Aðrir leikmenn þurfa að girða sig í brók fyrir sunnudaginn þegar KR mætir í Síkið í undanúrslitum Powerade bikarsins.

Stig Tindastóls: Þröstur Leó 23, Miller 14/9 fráköst, Svabbi 14, Allen 10, Tratnik 10, Rikki 9, Hreinsi 4, Helgi Freyr 2 og Helgi Rafn 1.

Björn Ingvarsson var á leiknum og hafði myndavélina með sér. Hér má finna nokkrar fínar myndir frá í gærkvöldi >

Fleiri fréttir