Fjölnismenn voru sterkari í Síkinu

Tindastóll tók á móti Fjölnismönnum í Síkinu í kvöld. Bæði lið voru án sigurs í Iceland Express-deildinni fyrir leikinn og því mikilvægt að krækja í stigin 2 sem í boði voru. Því miður fyrir stuðningsmenn Tindastóls fundu heimamenn aldrei almennilega taktinn og voru undir nánast allan leikinn og töpuðu á endanum með 9 stiga mun, lokatölur 89-98 fyrir Fjölni.

Leikurinn fór vel af stað og jafnræði með liðunum framan af. En þegar 5 mínútur voru liðnar slokknaði hreinlega á Stólunum og á 3 mínútum skoruðu gestirnir 14 stig í röð og breyttu stöðunni úr 13-15 í 13-29.  Aðeins náðu Tindastólsmenn að klóra í bakkann fyrir lok fyrsta leikhluta og héldu síðan áfram að saxa á forskot Fjölnis í upphafi annars leikhluta og fór þá Trey Hampton mikinn í sókninni. Helgi Rafn minnkaði muninn í eitt stig um miðjan leikhlutann. Fjölnir náði þá aftur ágætum kafla en Svabbi svaraði með sex stigum. Staðan í hálfleik 44-48.

Áhorfendur áttu von á því að Tindastólsmenn tækju sig á í síðari hálfleik en þá var hreinlega allt í járnum, leikurinn hnífjafn. Fjölnismenn voru veikir fyrir inni í teig og Stólarnir reyndu að koma boltanum á Hampton sem sýndi ágæta takta og skoraði grimmt. Hann náði að jafna leikinn 61-61 en gestirnir voru seigir utan 3ja stiga línunnar og komust yfir 61-64 en Hreinsi svaraði í sömu minnt. Helgi Margeirs kom Stólunum yfir með 3ja stiga skoti skömmu síðar og liðin skiptust á um að vera með forystuna á þessum lokamínútum þriðja leikhluta. Fjölnir var þó stigi yfir, 69-70, fyrir lokafjórðunginn.

Leikurinn var spennandi á upphafsmínútum fjórða leikhluta en einhvern veginn virtist Stólunum fyrirmunað að ná frumkvæðinu í leiknum og í hvert sinn sem þeir fengu tækifæri til þess reyndist sóknarleikur liðsins klúðurslegur. Boltinn gekk illa og afleitlega gekk að finna góð skotfæri. Þá virkuðu gestirnir snarpari og virtust hreinlega gráðugri og stemningin var betri í þeirra liði. Smá saman náðu Fjölnismenn að búa til 4-8 stiga forskot og Stólarnir virkuðu ekki líklegir til að brúa það bil. Það fór því svo á endanum að Fjölnismenn stóðu uppi sem sigurvegarar. Þeir voru einfaldlega betra liðið í kvöld.

Í liði Tindastóls var Trey Hampton atkvæðamestur, gerði 28 stig og tók 8 fráköst. Skotnýting hans í teignum var 55% en kappinn er síðan með einhvern daprasta vítaskotastíl sem sést hefur í Síkinu og liggur við að lofthæðin í Síkinu dugi ekki til. Maurice Miller gerði 18 stig, tók 14 fráköst og átti 10 stoðsendingar sem er glæsilegt. Svabbi var með 13 stig en spilaði aðeins í 15 mínútur í kvöld. Hjá gestunum var Nathan Walkup ansi seigur og gerði 24 sti en Árni Ragnarsson var 23 stig.

Það er því ljóst að einhver bið er eftir fyrsta sigri Tindastólsmanna í deildinni í vetur. Næsti leikur er hér heima gegn Stjörnunni í Lengjubikarnum.

Stig Tindastóls: Hampton 28, Miller 18, Svabbi 13, Helgi Rafn 10, Helgi Freyr 6, Rikki 5, Hreinsi 5 og Þröstur 4.

Fleiri fréttir