Fjólublá í úrslitum í kvöld
Nemendur í Grunnskóla Húnaþings vestra þau Elmar Baldursson, Guðni Skúlason, Guðrún Helga Magnúsdóttir og Rakel Ósk Ólafsdóttir munu í kvöld keppa fyrir hönd síns skóla í úrslitum í Skólahreysti.
Krakkarnir höfðu áður unnið sinn riðil í riðlakeppninni og keppa því til úrslita ásamt ellefu liðum til viðbótar. Úrslitakeppnin fer fram í kvöld og verður sýnt beint frá henni á Rúv. Stuðningslitur krakkanna er fjólublár og hvetur Feykir.is íbúa á Norðurlandi vestra sem staddir verða í borginni í kvöld að fjölmenna í Höllina og hvetja okkar lið.