Fjör á hestbaki
Það hefur heldur betur viðrað vel til útreiða í Skagafirði frá því Landsmót hestamanna var sett í upphafi mánaðar. Krakkarnir í Sumartím voru allavega ánægðir þegar blaðamaður Feykis rakst á þá á Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók í morgun.
Það er hinn gamalreyndi hestamaður frá Starrastöðum, Ingimar Pálsson sem hestar krakkana en hann rekur bæði reiðskóla og hestaleigu á Króknum. Ingimar telur að um 80 krakkar hafi skráð sig á reiðnámskeið frá því í vor og allt hafi gengið vel fyrir sig enda heilbrigðir og góðir krakkar á ferðinni.
.