Fjöugrra stiga leikur í Síkinu í kvöld

Það verður sankallaður fjögurra stiga leikur í Síkinu í kvöld föstudag, þegar Stjörnumenn koma í heimsókn. Liðin eru að berjast á svipuðum slóðum og sigur myndi lyfta okkar mönnum upp fyrir gestina í töflunni.

Stjarnan situr nú um stundir í 6. sæti IEX-deildarinnar með 16 stig, einum sigurleik á undan Tindastóli, sem situr í 7. sæti. Haukar eru í 5. sæti með jafn mörg stig og Stjarnan. Baráttan um 5. sætið er því hörð, en fjögur næstu lið fyrir ofan, virðast vera í sérflokki í vetur.

Fyrri leik liðanna í Ásgarði í Garðabæ lauk með sigri Tindastóls 88-89. Var þetta fyrsti sigur liðsins í deildinni og fyrsti leikur þeirra Haywards og Sean.

Körfuboltaspekingar telja að Stjarnan hafi verið að spila undir pari það sem af er vetrar, þar sem liðið er mjög sterkt á pappírunum og styrkti sig á milli tímabila.

Marvin Valdimarsson, sem var stigahæstur allra íslenskra leikmanna í IEX-deildinni á síðasta ári þegar hann lék með Hamri, með 24.5 stig að meðaltali í leik, gekk til liðs við Stjörnuna og bættist þar í hóp mjög öflugra leikmanna. Þar fremstan má telja Justin Shouse, bakvörðinn skemmtilega, sem verið hefur hér á Íslandi í mörg ár og allir körfuknattleiksunnendur þekkja vel. Jovan Zdravevski er afar öflugur leikmaður sem verið hefur sömuleiðis í mörg ár á Íslandi.

Athygli vekur að allir þrír ofantaldir leikmennirnir voru meðal 6 stigahæstur leikmanna IEX-deildarinnar á síðasta tímabili.

Fannar Freyr Helgason er öflugur undir körfunni og honum til fulltyngis þar er nýkominn leikmaður frá Eistlandi, Renato Lindmets.

Þá er ógetið þeirra Kjartans Atla Kjartanssonar, sem er ein besta þriggja stiga skytta landsins og Daníels Guðmundssonar, sem gekk til liðs við Stjörnumenn frá Breiðabliki fyrir tímabilið.

Stjarnan er gríðarlega gott sóknarlið og þurfa okkar menn að hafa baráttuna og einbeitinguna vel í lagi í vörninni. Liðið okkar hefur sýnt góð tilþrif í vörninni í síðustu heimaleikjum, en liðið er ósigrað á heimavelli í 6 leikjum. Með áframhaldandi stuðningi áhorfenda, ætti að vera möguleiki að viðhalda þessum góða heimavallarárangri.

Leikurinn hefst á gamla góða tímanum kl. 19.15. Í hálfleik fara úrslitin fram í fyrirtækjakeppninni, en þá mun einn fulltrúi frá hverju þeirra fyrirtækja sem komin eru í úrslitin, keppa um sigurinn í þessum skemmilega leik. Alls eru það 6 fyrirtæki sem unnið hafa sér þátttökurétt í úrslitunum; Tengill, Ólafshús, Sauðárkróksbakarí, Skagfirskur matur, K-Tak og FISK-Seafood.

Dómarar verða þeir Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson

Fleiri fréttir