Flatbrauð til sölu fyrir Gautaborgarför
Frjálsíþróttakrakkarnir úr Skagafirði, sem stefna á Gautaborgarleikana í sumar, ætla að ganga í hús næstu daga og selja flatbrauð til styrktar sinni ferð. Pakkinn kostar 500 kr. Einnig er hægt að nálgast flatbrauðið góða hjá Steinunni í síma 848-4152 eða í netfanginu steinadana@talnet.is.
Gautaborgarleikarnir eru eitt stærsta unglingamót í frjálsíþróttum, sem haldið er í heiminum. Það er mikið ævintýri að fá að keppa á slíku móti og krakkarnir okkar hafa svo sannarlega unnið fyrir því, segir á heimasíðu Tindastóls.