Flemming open 2012

Púttmótið Flemming open var haldið á nýja púttvellinum á flötinni sunnan heilsugæslunnar á Hvammstanga miðvikudaginn 20. júní. Mótshaldari og gefandi verðlauna er Flemming Jessen fyrrverandi skólastjóri á Hvammstanga.

Samkvæmt fréttatilkynningu tóku alls 23 keppendur þátt í mótinu, nú 16 karlar og 7 konur. Fyrsta mótið með þessu nafni var haldið síðasta sumar að loknu Landsmóti 50+ en völlurinn var útbúinn af því tilefni. Flemming hefur heitið því að halda samskonar mót seinniparinn í júní ár hvert meðan hann er uppistandandi.

Leiknir voru 2 hringir 2 x 9 holur en völlurinn er par 21. Úrslit urðu sem hér segir:

KONUR

  1. Margrét Guðmundsdóttir                          44 högg
  2. Linda Þorleifsdóttir                                   45 högg
  3. Tanja Ennigarð                                         46 högg

KARLAR

  1. Þorleifur Karl Eggertsson                         42 högg  eftir bráðabana
  2. Marteinn Reinarsson                                42 högg
  3. Páll Sigurðssson                                       43 högg eftir bráðabana
  4. Helgi Kristjánsson                                     43 högg

„Það er öllum frjálst að leika á þessum velli sem er nú í góðu ásigkomulagi. Völlurinn er samvinnuverkefni Húnaþings vestra sem kostar umhirðu og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem leggur til aðstöðu fyrir völlinn. Björn Þorgrímsson hefur séð um umhirðu og uppbyggingu púttvallarins,“ segir í fréttatilkynningu.

Myndirnar með þessari frétt tók Rósa Friðriksdóttir

Fleiri fréttir