Flóamarkaður í dag
Flóamarkaður verður starfræktur í dag í Húsi frítímans á Sauðárkróki þar sem ýmislegt verður boðið til sölu. Hófst hann klukkan 11 í morgun og stendur til 16:00.
Fólk var farið að mæta fljótlega eftir opnun í morgun til að næla sér í álitlegustu fötin en það er fatnaðurinn sem er mest áberandi á markaðnum. Mörg söluborð eru á staðnum, mikið af góðum vörum og hægt að gera góð kaup.