Flokkun hafin í Árskóla
Flokkun á sorpi í samræmi við stefnu Sveitarfélagsins Skagafjarðar í flokkunarmálum hófst í í Árskóla mánudaginn 2. maí. Skipulag á flokkunninni mun miðast við aðstöðu í skólanum en foreldrar fengu fyrir helgi tölvupóst þar sem fyrirkomulag varðandi flokkun á nesti og öðrum matarúrgangi var kynnt en í einhverjum tilfellum verða börnin send heim með sorp sem ekki verður hægt að flokka í skólanum.