Flottir fornbílar við Skagfirðingabúð - FeykirTv
Glæsilegur floti 33 fornbíla víða að úr heiminum voru á ferðinni um landið dagana 18. – 26. apríl og áttu viðkomu um Norðurland vestra. Þar á ferð voru meðlimir í breskum akstursíþróttaklúbb sem skipuleggur keppnir fyrir fornbíla og nefnist Historic Endurance Rally Organisation, eða HERO, og voru bæði í útsýnistúr um Þjóðveg 1 og að keppa í ralli og akstursleikni og óku þeir hringinn í kringum Ísland.
Samtökin stóðu fyrir samskonar ferð hérlendis árið 2008 og að sögn Tryggva Magnúsar Þórðarsonar, tengiliðs erlendu ökuþóranna, voru þeir hæstánægðir með reisuna. Ætlunin var að snúa aftur árið 2010 en þá gaus Eyjafjallajökull og því varð ekki úr för fyrr en nú.
„Þetta er áhugamannafélag um fornbíla og eru allir í klúbbnum á þeirri skoðun að það eigi keppa á þeim og nota þá,“ segir Tryggvi í samtali við Feyki. Margir bílanna eru afar fágætir en þeir eru frá ýmsum löndum flestir frá Bretlandseyjum, Írlandi, Austurríki, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Noregi, Sviss, Hollandi, Belgíu og Nýja Sjálandi.
Hér má sjá kappana spreyta sig í fornbílarallý við Skagfirðingabúð á Sauðárkróki.
https://youtu.be/zXvLbelVM30