Flugeldamarkaður Húna

Björgunarsveitin Húnar verður með flugeldamarkað í Húnabúð, húsi björgunarsveitarinnar að Höfðabraut 30 Hvammstanga, fram á Þrettándann á eftirtöldum dögum. Samkvæmt heimasíðu björgunarsveitarinnar verður góður afsláttur veittur þessa söludaga. 

  • Föstudaginn 4. janúar kl. 17-19
  • Laugardaginn 5. janúar kl. 11-16
  • Þrettándinn 6. janúar kl. 12-18

„Flugeldamarkaðurinn er okkar helsta fjáröflun og ykkar stuðningur er okkar styrkur,“ segir á heimasíðunni. Vakin er athygli á því að 16 ára og yngri fá ekki afgreiðslu á flugeldamörkuðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Fleiri fréttir