Flughálka á Þverárfjallsvegi og Útblönduhlíð

Vegagerðin varar við flughálku og þoku á Þverárfjallsvegi og flughálku í Útblönduhlíð. Hálka og þoka er á milli Hvammstanga og Blönduóss. Hæg austlæg eða breytileg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, skýjað en úrkomulítið.

Norðaustan 5-10 og slydda eða rigning verður síðdegis samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Hægari breytileg átt og lítilsháttar rigning á morgun. Hiti 1 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á fimmtudag:
Suðvestan 5-13 m/s. Úrkomulítið A-lands, annars snjókoma eða slydda með köflum. Hiti kringum frostmark. Styttir upp að mestu um kvöldið og kólnar.

Á föstudag:
Suðaustan og austan 10-18 m/s og snjókoma eða slydda, en rigning við S- og A-ströndina. Hægari sunnanátt undir kvöld og skúrir eða él S-lands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig S- og A-lands, annars um og undir frostmarki.

Á laugardag:
Suðvestan 3-10 m/s og él við S- og V-ströndina, en þurrt á N- og A-landi. Hiti um og yfir frostmarki, en vægt frost inn til landsins.

Á sunnudag:
Útlit fyrir ákveðna austan- og norðaustanátt. Slydda eða rigning á A-helmingi landsins og snjókoma í innsveitum. Úrkomulítið V-til. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Líklega minnkandi norðaustanátt og úrkoma fyrir norðan og austan. Hiti um og yfir frostmarki.

Fleiri fréttir