Flutningabíll út af í Húnavatnssýslu

Flutningabíll fór útaf þjóðveginum við Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu snemma í morgun. Verið var að flytja fisk í körum en óljóst er hver orsök slyssins voru en svo virðist sem bílstjórinn hafi misst vald á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af.

Tafir hafa orðið á umferð um veginn en björgunarsveitir frá Hvammstanga og Blönduósi voru kallaðar út til að aðstoða við að hreinsa svæðið. Bílstjórinn, sem var einn í bifreiðinni, mun hafa sloppið án alvarlegra meiðsla. Samkvæmt heimildum Feykis verður veginum lokað tímabundið í dag meðan bifreiðin ásamt því sem eftir er af vagninum verða flutt burt.

Fleiri fréttir