Fluttar með sjúkraflugi eftir alvarlegt vélsleðaslys

Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki.
Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki.

Tvær ungar stúlkur voru fluttar í kvöld með sjúkraflugi eftir alvarlegt vélsleðaslys við sveitabæ í Austur-Húnavatnssýslu. Ökumaður sleðans er alvarlega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi, en sleðinn hafnaði undir heyrúlluvagni er hún missti stjórn á sleðanum. Það er rúv.is sem greinir frá.  

Samkvæmt frétt rúv.is skoðaði læknir stúlkurnar á vettvangi og voru þær síðan fluttar með sjúkrabílum á Sauðárkrók og þaðan var flogið með þær í sjúkraflugi suður til Reykjavíkur. Þar sem Alexandersflugvöllur er allajafna ekki í notkun þurfti fyrst að ryðja völlinn og sandbera, flugvélin fór í loftið rétt fyrir kl. 20 í kvöld. 

Tilkynnt var um slysið um kl. 17 í dag en þá voru báðar þyrlur Landhelgisgæslunnar í verkefnum, önnur í Öræfum og hin á leiðinni inn í Öræfi. Haft er eftir Landhelgisgæslunni að þeirri þyrlu hafi verið snúið til norðurs vegna vélsleðaslyssins en úr varð að sjúkraflugvél Mýflugs flutti stúlkurnar í til Reykjavíkur.

Fleiri fréttir