FNV og LbhÍ á Hvanneyri taka upp athyglisvert samstarf

Þriðjudaginn 21. mars undirrituðu Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri (LbhÍ) samkomulag um samstarf sem miðar að því að nemendur eigi þess kost að útskrifast með stúdentspróf frá FNV og búfræðipróf frá LbhÍ.

Að sögn Ingileifar Oddsdóttur, skólameistara FNV, býður skólinn upp á tveggja ára undirbúningsnám í samræmi við forkröfur til innritunar í búfræði við LbhÍ. Nemandi sem útskrifast frá LbhÍ eftir tveggja ára nám í búfræði útskrifast á sama tíma með stúdentspróf frá FNV. Námið er alls skipulagt til fjögurra ára en nemendur taka tvö fyrstu árin, fjórar annir, við FNV en seinni tvö árin eða aðrar fjórar annir, við búfræðibraut LbhÍ á Hvanneyri.

Ingileif segir að FNV tryggi þó ekki að nemendur fái aðgang að LbhÍ, aðeins að námið uppfylli inntökuskilyrði LbhÍ og kröfur sem gerðar eru til stúdentsnáms, þegar því er að fullu lokið. Nemendur þurfa sjálfir að sækja um nám hjá LbhÍ og tryggja að þeir uppfylli önnur þau inntökuskilyrði sem LbhÍ setur.

„Mjög margir nemendur FNV hafa að námi loknu farið í búfræðinám við LbhÍ. Við erum því afskaplega ánægð með að geta boðið nemendum skólans þennan möguleika,“ segir Ingileif.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir