Fögur björk rís úr íslensku kjarri – fræðslufundi frestað um viku
Skógræktarfélag Skagfirðinga og Garðyrkjufélag Skagafjarðar efna til fræðslufundar á Kaffi Krók miðvikudagskvöldið 26. mars kl. 20:00. Til stóð að halda fræðslufundinn á morgun 19. mars, líkt og auglýst var í síðasta Sjónhorni, en hefur honum verið frestað um viku vegna slæmrar veðurspár.
Fögur björk rís úr íslensku kjarri, saga um rannsóknir og kynbætur í fjóra áratugi og verkefni framundan eru umræðuefni fundarins. Þá mun Þorsteinn Tómasson plöntuerfðafræðingur flytja erindi um kynbætur á íslenska birkinu.
„Kynbótastarfið beinist að verulegu leiti að því að skapa yrki þar sem fjalldrapaáhrifin eru lágmörkuð. Tvö yrki eru komin á markað, Embla og Kofoed og í sjónmáli er íslenskt yrki með rauðan blaðlit og hvítan stofn sem mun henta vel sem garðtré,“ segir í auglýsingu.
Verð 500 kr. Kaffiveitingar. Allir velkomnir