Föndurkvöldin í Hlín á Hvammstanga

Verslunin Hlín á Hvammstanga hefur boðið upp á föndurkvöld einu sinni til tvisvar í viku yfir vetrartímann. Samkvæmt Norðanátt.is hafa föndurkvöldin verið skemmtilegar samverustundir með því fólki sem sótt hefur föndurkvöldin, létt spjall yfir kaffibolla þegar tími hefur gefist til að líta upp frá góðu verki.

Á Norðanátt.is segir að föndurkvöldin hafi ekki verið hugsuð sem námskeið heldur hefur fólk unnið það sem það hefur áhuga á t.d. að prjóna, hekla, mála, búa til kort og margt fleira. Kostnaði við föndurkvöldin hefur verið haldið í lágmarki og kostar hvert kvöld kr. 350,-

Á föndurkvöldunum hefur fólk aðgang að ýmsum verkfærum tengt föndurgerð, svo sem límbyssu, skærum, blaðskurðarhníf ofl. Einnig geta þeir sem sækja föndurkvöldin verslað það sem til þarf við föndurgerðina meðan á föndurkvöldinu stendur. Lögð hefur verið áheyrsla á að hafa föndurkvöldin sem frjálslegust og leyfa hverjum og einum að njóta sín og vinna ótruflaður á sínum hraða og með sínu verklagi.

Föndurkvöldin eru yfirleitt á mánudagskvöldum frá kl. 20:00. Það hefur verið hafður sá háttur á að panta þarf á föndurkvöldin í síma 451 2515 með fyrirvara svo hægt sé að láta viðkomandi vita ef breyting verður á föndurkvöldi eða ef fella þarf föndurkvöld alveg niður.

Fleiri fréttir