Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins á ferð í Skagafirði
Þau Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal ásamt Einari Kristni Guðfinnssyni verða á Sauðárkróki í dag mánudag 9. maí. Tilgangur ferðarinnar er að skerpa tengsl Sjálfstæðisflokksins við landsbyggðina og munu þau halda opinn stjórnmálafund í Ljósheimum kl. 20:30 í kvöld.
Skagfirðingum gefst því tækifæri að ræða beint við forystumenn Sjálfstæðisflokksins um stjórnmálin og þau vandamál sem þjóðin stendur frammi fyrir á líðandi stundu.