Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og Ólöf Nordal, varaformaður, heimsóttu Skagfirðinga í fyrradag og héldu með þeim opinn stjórnmálafund undir  yfirskriftinni „Til móts við tækifærin“ Fundurinn var haldinn í Ljósheimum og var ágætlega sóttur en þar var  m.a. rætt um atvinnumál, sjávarútvegsmál, landbúnað og Evrópusambandið.

Í heimsókn sinní Skagafirði heimsóttu þau Bjarni og Ólöf fjölmörg fyrirtæki m.a. Kaupfélag Skagfirðinga, Verið, Kjarnann, Gestastofu sútarans og farið var í heimsókn til Bjarna Haraldssonar, kaupmanns í Verslun Haraldar Júlíussonar.

Fleiri fréttir